Takk fyrir komuna á opið hús í ME

Það var mikið um að vera á opnu húsi í ME á síðastliðinn fimmtudag þegar áhugasamir nemendur í 10. bekk og aðstandendur þeirra kíktu í heimsókn. Gestum og gangandi var boðið að taka þátt í nokkurs konar ratleik um húsakynni skólans sem fól í sér að leysa þrautir og svara ýmis spurningum sem við kemur skólastarfinu, náminu og félagslífinu í ME. Jafnframt var boðið upp á léttan kvöldverð í mötuneyti skólans. 

Stigahæstu liðin í ratleiknum voru:

Jói og Nói

Sofija og Gerður

Álfar

Þau fá öll frekari upplýsingar í gegnum tölvupóst um hvernig má nálgast vinningana.

Við þökkum ykkur öllum kærlega fyrir komuna og vonumst til að sjá ykkur í haust.