Í dag, á Degi íslenskrar náttúru, fékk skólinn afhentan Grænfánann í annað sinn en grænfáninn er alþjóðleg viðurkenning til skóla fyrir vinnu að menntun til sjálfbærni. Síðustu ár hefur mikil vinna farið fram innan skólans, undir forystu umhverfisnefndar, við að efla umhverfisvitund nemenda og starfsfólks í ME. Stór hluti þeirrar vinnu hefur falist í að auka ábyrgðartilfinningu og meðvitund nemenda og starfsfólks, bæði gagnvart sínu nánasta umhverfi sem og gagnvart umhverfismálum á heimsvísu. Í skólastarfinu hefur markvisst verið unnið að sjálfbærni á sem flestum sviðum og leitast við að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum starfseminnar.
Liðir í þessari vinnu hafa meðal annars verið þátttaka í Grænum skrefum í ríkisrekstri auk þátttöku í Grænfánaverkefni Landverndar.
Það var Guðrún Schmidt, fræðslustjóri Landverndar og sérfræðingur í menntateymi samtakanna, sem afhenti Árna skólameistara, nemendaráði ME og Kristóferi Hilmari, fulltrúa úr umhverfisnefnd síðasta skólaárs, hinn græna fána. Guðrún flutti jafnframt glæsilega ræðu þar sem hún hvatti nemendur til að halda áfram því góða starfi sem unnið hefur verið undanfarin ár. Hún minnti á að þótt enginn geti gert allt geti allir gert eitthvað, og að nemendur hafi fjölmörg tækifæri til að láta að sér kveða í loftslagsmálum.
Guðrún lýsti einnig ánægju sinni með að, fyrir tilstilli nemenda og hugmyndavinnu og áhuga þeirra, sé nú boðið upp á áfanga í skapandi uppvinnslu, eða endurhönnun textíls, við skólann. Áfanginn hefur vakið mikinn áhuga og er fullskipaður af áhugasömum nemendum.
Við þökkum Guðrúnu kærlega fyrir komuna og fyrir fánann.
Þau sem hafa áhuga geta kynnt sér umhverfis- og loftslagsstefnu skólans nánar hér.