Til hamingju, dr. Margaret Johnsson!

Í gær varði dr. Margaret Anne Johnson, ensku- og kynjafræðikennari við skólann, doktorsritgerð sína í kynjafræði við stjórnmálafræðideild HÍ en ritgerðin ber titilinn „Höfnun eða eftirsjá í tengslum við móðurhlutverkið: Tilfinningaleg togstreita og misvísandi orðræður í ákvarðanatöku um barneignir.“ Vörnin fór fram í Hátíðarsal HÍ og stóðst Margaret hana með prýði en andmælendur voru dr. Shani Orgad, Prófessor við London School of Economics and Political Science, og dr. Armi Mustosmaki dósent við University of Eastern Finland. Á vefsíðu Háskóla Íslands má lesa nálgast frekari upplýsingar um ritgerðina. 

Starfsfólk skólans óskar henni hjartanlega til hamingju með vörnina.