TME spilar íslenskt sveitaballarokk á Eiðum

Tónlistarfélag ME blæs til fyrstu tónleika skólaársins miðvikudagskvöldið 11. nóvember í Alþýðuskólanum á Eiðum. Þema tónleikanna er hið eina sanna íslenska sveitaballarokk! Húsið opnar klukkan 19:00 og hefjast tónleikarnir stundvíslega klukkan 19:30.
 
Miðverð: 
Almennt miðaverð: 2.500 kr
NME og ME: 1.900 kr
Yngri en 15 ára: 1.500 kr
FRÍTT fyrir yngri en 6 ára
 
Miðar eru seldir á staðnum og hægt verður að greiða með korti. 
 

Við hvetjum alla til að mæta og styðja við bakið á þátttakendum, sem hafa æft af kappi síðustu vikur.