Umsóknir um jöfnunarstyrk

Nemendur sem eiga rétt á jöfnunarstyrk frá Menntasjóði námsmanna eru hvattir til að sækja um sem fyrst. Opnað var fyrir umsóknir þann 1. september. Þeir nemendur sem áætla að stunda nám á báðum önnum námsársins eru hvattir til að sækja nú um báðar annir. 

Eingöngu er hægt að sækja um styrkinn með rafrænum skilríkjum á heimasíðu Menntasjóðs www.menntasjodur.is eða á www.island.is

Ef sótt er um eftir 15. október fá nemendur 15% skerðingu á styrknum. Allar frekari upplýsingar má finna á síðu sjóðsins eða með því að senda tölvupóst á menntasjodur@menntasjodur.is