Útskrift fimmtudaginn 21. desember

Brautskráning frá Menntaskólanum á Egilsstöðum fer fram í Egilsstaðakirkju 21. desember næstkomandi klukkan 14:00. 18 nemendur útskrifast að þessu sinni. Útskriftarnemar hafa fengið sendan upplýsingapóst þar sem nánar er farið yfir fyrirkomulag og æfingu fyrir útskrift.

Streymt verður frá athöfninni og kemur hlekkur hér á heimasíðu skólans og á Facebook síðu skólans með góðum fyrirvara. Facebook síðu ME má finna hér.