Rafræn sýning á lokaverkefnum útskriftarnemenda ME haust 2025 hefur verið opnuð. Lokaverkefnin eru fjölbreytt að efni og innihaldi, fræðandi og áhugaverð. Um leið og nemendum er óskað til hamingju með lærdómsrík verkefni fá þau kærar þakkir fyrir skemmtilega samveru síðastliðin ár og óskir um velfarnað í framtíðinni. Slóðin á sýninguna er hér.