Velkomin aftur í skólann

ME að hausti
ME að hausti

Nemendur hefja aftur nám í skólanum í dag 5. janúar. Þetta er mikið fagnaðarefni, en til að allt gangi sem best og allir gangi í takt eru áréttaðar umgengnisreglur. Eftirfarandi umgengnisreglur vegna Covid 19 voru sendar nemendum.

 

Það er grímuskylda í skólanum þar til annað er ákveðið.

Þessi regla gerir okkur kleyft að stilla upp borðum í kennslustofum með eins metra fjarlægð.

Ef næst að halda tveggja metra fjarlægð í stofum vegna fámennra nemendahópa þá er leyfilegt að taka grímur niður.

Sömuleiðis höldum við ótrauð áfram með að hreinsa okkar vinnusvæði í skólastofum bæði fyrir og eftir kennslutíma. Pössum nálægðarmörk eins og hægt er í almennum rýmum skólans svo sem göngum, snyrtingum og í mötuneyti skólans.

 

Almennt hreinlæti er það sem er allra mikilvægast.

Þvoðu hendur þínar reglulega með vatni og sápu, minnst 20 sekúndur í hvert skipti.

Ef vatn og sápa eru utan seilingar er gott að nota handspritt, til dæmis þegar þú hefur notað greiðslukort eða komið við fleti sem margir snerta, svo sem hurðarhúna.

Á vef landlæknis eru góðar upplýsingar um hvernig gæta má varúðar gegn sýkingum.

Ef þú þarft að hósta eða hnerra skaltu nota olnbogabótina eða einnota klúta. Þannig kemurðu í veg fyrir að úði fari á hendur. Gættu þess að hósta eða hnerra ekki á aðra.

Takmarkaðu náin samskipti við annað fólk, til dæmis handabönd og faðmlög. Finndu aðrar leiðir til þess að heilsa sem ekki fela í sér snertingu.

Reyndu að bera ekki hendur upp að andlitinu, sérstaklega augum, nefi og munni.

 

Þið ykkar sem finnið fyrir veikindum svo sem almennum slappleika, kvefi og svo framvegis, eruð áfram beðin um að halda ykkur heima af tillitssemi við aðra nemendur eða starfsmenn.

Einnig að fara í skimun ef þið eruð óviss.

 

Ef þið vegna heilsufars eða annarra sérstakra aðstæðna sjáið ykkur ekki fært að stunda dagskólanám í skólahúsnæðinu á meðan skólastarfið er með þessum hætti eruð þið beðin að senda póst á arniola@me.is og tilgreina í stuttu máli ástæður þess. Þá verður vinna ykkar í skólanum með fjarnámssniði í gegnum námsvef skólans Canvas og samskipti við kennara verða í gegnum tölvuna og símann