Velkomin í ME á vorönn

Opið er fyrir umsóknir í dagskóla og fjarnám um þessar mundir. Sótt er um námið á www.me.is á hnappnum sem heitir "umsókn um nám" á forsíðu heimasíðunnar. Við að smella á hnappinn færist þið yfir á síðu menntamálastofnunar sem sér um umsóknarferlið. Opið er fyrir umsóknir út nóvember mánuð.

Örfá laus pláss eru á heimavist svo umsækjendur eru hvattir til að hafa hraðar hendur. 

Nokkur laus pláss eru í áfanga í fjarnámi á fyrri og seinni spönn. Best er að sækja um á umsokn.inna.is.

Allar upplýsingar fyrir áhugasama verðandi ME-inga má finna á heimasíðunni en einnig er velkomið að hafa samband við skólann. 

Verið velkomin í ME á vorspannir.