Soroptimistar á Austurlandi, sem vinna meðal annars að því markmiði að hvetja til aðgerða og skapa tækifæri til að breyta lífi kvenna og stúlkna, hafa undanfarin ár veitt útskriftarefni ME, sem sýnt hefur eftirtektarverða seiglu í námi þrátt fyrir ýmis áskoranir, sérstök hvatningarverðlaun. Að þessu sinni var það hún Auður Erna Aradóttir sem hlaut viðurkenninguna en hún mun á morgun útskrifast frá ME ásamt 46 öðrum nemendum. Það var Þórunn Hálfdánardóttir sem veitti henni verðlaunin í dag f.h. Soroptimistaklúbbs Austurlands.
Við óskum Auði Ernu hjartanlega til hamingju með verðskulduð verðlaun.
Á myndinni eru Þórunn Hálfdánardóttir, Auður Erna Aradóttir og Árni Ólason.