Í hádeginu í dag veittu Árni skólameistari, Eyrún áfangastjóri og Reynir forvarna- og félagslífsfulltrúi, útskriftarefnum vorsins viðurkenningu fyrir framlag sitt til félagsstarfa í ME. Að þessu sinni voru það Elín Eik, Jódís Eva, Auðun, Steinar, Ína Berglind, Brynja, Arney og Sigríður Svandís sem fengu verðlaun en þau hafa öll setið í nemendaráði á skólaárinu sem senn fer að ljúka. Til hamingju frábæra fólk og hjartans þakkir til ykkar!