Innritun á haustönn 2022

Menntaskólinn á Egilsstöðum
Menntaskólinn á Egilsstöðum

Innritun í Menntaskólann á Egilsstöðum á haustönn 2022 fer fram á slóðinni menntagatt.is sem er sameiginlegt umsóknarkerfi framhaldsskólanna.

Umsækjendur nota rafræn skilríki eða íslykil til að sækja um.

Innritun á starfsbrautir fyrir fatlaða nemendur fer fram 1.-28. febrúar
Áætlað er að afgreiðslu umsókna þessara nemenda verði lokið fyrir lok apríl.

Innritun eldri nemenda fer fram 15. mars til 22. apríl
Fyrir eldri nemendur sem fæddir eru 2005 og fyrr.

Innritun 10. bekkinga fer fram á tímabilinu 25. apríl - 10. júní
Forinnritun nemenda sem ljúka munu 10. bekk vorið 2022 (fæddir 2006 eða síðar). Nemendur fá sent bréf með leiðbeiningum um hvernig sækja á um frá Menntamálastofnun, en í bréfinu er líka að finna veflykil sem þeir nota til að komast inn í umsókn á netinu. Foreldrar fá einnig sent kynningarbréf um umsóknarferlið.

 

Ýmsar skemmtilegar og fróðlegar upplýsingar um ME:

Skoðaðu húsnæði ME í sýndarferðalagi.

Viltu fræðast meira um skólalífið og námsbrautir:

Heimavistin í ME:

 

Við bjóðum nýja nemendur velkomna í ME