Opið hús í ME fyrir 10. bekk

Við í Menntaskólanum á Egilsstöðum bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á opið hús í ME, fimmtudagskvöldið, 16. apríl n.k. á milli kl. 18:00-20:00. Hægt er að koma við hvenær sem er á þeim tíma. Á viðburðinum býðst gestum tækifæri til að öðlast skemmtilega innsýn inn í skólastarfið, námsframboðið, þjónustuna, heimavistarlífið og síðast en ekki síst félagslífið. Nemendur, kennarar og starfsfólk sýna frá skólastarfinu á stöðvum víðsvegar um skólann og ykkur gefst tækifæri til að spyrja að öllu því sem ykkur langar að vita um ME.

Boðið verður upp á léttan kvöldverð í mötuneytinu.
Skráning og nánari upplýsingar hér og í viðhengi.