Fréttir

Opið fyrir umsóknir í fjarnám á seinni spönn

Búið er að opna fyrir umsóknir í fjarnám á seinni haustspönn

Skóladagatal uppfært

Búið er að endurnýja skóladagatalið á vef skólans en í fyrri útgáfu gleymdist að gera ráð fyrir uppstigningardegi.

Fyrstu dagar skólaársins

Menntaskólinn á Egilsstöðum var settur miðvikudaginn 19. ágúst. Viðstaddir skólasetningu voru eingöngu nýnemar og starfsfólk skólans. Aðrir nemendur og aðstandendur gátu fylgst með skólasetningu í tölvunni þar sem útsending var á Zoom.

Viltu efla þig í útivist og ævintýrum?

F:ire&ice - Útivist og sjálfsefling er 5 eininga útivistaráfangi við Menntaskólann á Egilsstöðum. Áfanginn er hluti af Erasmus+ ungmennaskiptaverkefni

Skólahald í næstu viku og jafnvel þar næstu

Nýnema dagar skólans gengu mjög vel fyrir sig frá miðvikudegi þar til í dag og okkar nýju nemendur virðast komnir vel af stað.

F:ire&ice á Víknaslóðum 10.-14. ágúst síðastliðinn

Í Menntaskólanum á Egilsstöðum var boðið uppá útivistaráfanga síðastliðinn vetur. Þessi áfangi hafði þá sérstöðu að megináherslur voru að efla sjálfsþekkingu nemenda, trú á eigin getu, samskiptahæfni og tengsl þeirra við náttúruna og sjálfan sig.

Umsóknarfrestur í fjarnám framlengdur

Enn er hægt að komast í fjarnám í sumum áföngum og því hefur umsóknarfrestur verið framlengdur til 23. ágúst. Allar upplýsingar um fjarnámið eru hér á síðunni undir "Fjarnám".

Skólasetning - streymi

Skólasetning ME fer fram kl. 10 miðvikudaginn 19. ágúst. Aðeins nýnemar mæta að þessu sinni í skólann.

Enn pláss í fjarnám

Ennþá eru einhver pláss laus í fjarnám okkar hér í ME.

Skólasetning og upphaf skólans

Senn líður að skólabyrjun. Með tilliti til 100 manna fjöldatakmarkana vegna Covid 19 verður breytt skipulag í upphafi spannar.